Fréttir
Inter Open 2018
- Details
Eins og venjulega héldum við Inter open mótið hjá okkur.
Sigurvegarar standa hér stoltir með verðlaunin.
Zoll AED hjartastuðæki á sérstöku tilboðsverði
- Details
Nú getum við boðið frábæra Zoll AED hjartastuðtækið á betra verði 159.900 með vsk!
- Leiðbeinir með hjartahnoð á íslensku
- 5 ára endingartími á rafhlöðum
- 5 ára endingartími á rafskautum
- 5 ára ábyrgð
Inter Open 2016
- Details
Inter Open var haldið í 14. sinn 28.desember 2016. Eins og undanfarin ár var keppt í snóker og pílu.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og að þessu sinni voru það þeir Hörður Hákonarson, Jón Þór Helgason og Þorvaldur Sigurðsson sem fóru heim með bikara.
BK Ultrasound, nýtt vörumerki hjá Inter.
- Details
Inter og BK Ultrasound hafa skrifað undir formlegan samning um sölu, dreifingu og þjónustu á ómtækjum og rekstrarvörum þeim tengdum. Í byrjun nóvember skellti Fanný sér til höfuðstöðva BK Ultrasound í Kaupmannahöfn og sat þar 2ja daga námskeið í notkun og uppsetningu á tækjunum. Í beinu framhaldi fór hún til Dusseldorf í Þýskalandi á fund umboðsaðila BK víðsvegar að úr heiminum. Þar voru kynntar ýmsar spennandi nýjungar sem eru væntanlegar á markað.
Endilega hafið samband við Fannýju ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið kynna ykkur frekar hvað BK Ultrasound hefur upp á að bjóða.
Zoll endurlífgunartæki til Heilsugæslu Akureyrar
- Details
Hjartavernd Norðurlands gaf á dögunum Heilsugæslu Akureyrar veglega gjöf í formi Zoll endurlífgunartækis. Samskonar tæki eru nú þegar í notkun í sjúkrabílum á Akureyri og eykur þetta því samræmi í meðferð og öryggi sjúklinga.
Zoll endurlífgunartæki eru með þeim fullkomnustu á markaði og leiðbeina á íslensku.
Nýr vefur Inter kominn í loftið
- Details
Við höfum unnið hörðum höndum síðustu mánuði að gera nýjan vef fyrir Inter sem fór í loftið í dag. Við vonum að vefurinn þjóni viðskiptavinum okkar betur en gamli vefurinn en þiggjum allar ábendingar og athugsemdir við vefinn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Áfram Ísland
- Details
Fjörið heldur áfram í Frakklandi. Ísland sigraði England í gærkveldi í mögnuðum leik, 2-1. Með sigrinum komst Ísland í 8 liða úrslit og spilar því næst gegn Frakklandi næstkomandi sunnudag 3. júlí á Stade de France, Saint Denis.
Fylgjumst öll með leiknum og styðjum landsliðið okkar til sigurs gegn Frökkum.
Ísland komið í 16 liða úrslit
- Details
Að sjálfsögðu sendir Inter Íslenska liðinu bestu kveðjur og vonum að þeir sigri England.
ScarHeal bætist í hóp samstarfsaðila
- Details
Nú á dögunum var gerður samningur við Scarheal um innflutning á þeirra vörum. ScarHeal er Bandarískt fyrirtækið sem var stofnað 1988 og byggir á nýjungum í framleiðslutækni til að framleiða framúrskarandi vörur til að hindra eða bæta útlit öra án skurðaðgerðar.
Pal International
- Details
Nú hafa náðst samningar við Pal varðandi sölu á einnota hreinlætisvörum fyrir heilbrigðisstofnanir og matvælaiðnað. Pal framleiðir t.d. hreinsiklúta með eða án alkóhóls og samkvæmt ströngustu stöðlum.