+354-551-0230Inter ehf - Vatnagarðar 12, 104 ReykjavíkOpið: Mán-Fim 8-16:30| Fös 8-16

Leita í vörulistanum

 

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefst skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi á næsta ári.

Fjallað var m.a. um málið á Vísi.

Meltingarklínikin í Ármúla hefur nú þegar tekið í notkun speglunartæki frá Olympus þar sem notast er við gervigreind til að bæta gæði greiningar.

Mikil ánægja er með virkni tækjanna og þykja þau marka tímamót í greiningu krabbameins á frumstigi í ristli.

Olympus, sem er leiðandi í framleiðslu speglunartækja, kynnti þessa nýju tækni til sögunnar í október 2020 og hefur hún fengið góðar viðtökur um allan heim. Á sama tíma var kynnt til sögunnar ný lína tækja, EVIS X1, sem setur ný viðmið fyrir gæði í greiningu og meðhöndlun meina. Með ENDO-AID hugbúnaðinum hefur Olympus ennfremur aukið við gæði speglunar í ristli og endaþarmi.

Tækin skima myndirnar í rauntíma og merkja inn á þær hvar hugsanleg mein getur verið að finna. Á myndinni má sjá hvar gervigreindin hefur merkt  það svæði sem líklegt er að þurfi að skoða nánar.